Útgáfa fræðitímarita á netinu (12.2013)

Greinin var birt í veftímaritinu Stjórnmál og stjórnsýsla haustið 2013. Hún var óritrýnd.

Úr inngangi: „Á vegum veftímaritsins Stjórnmál og stjórnsýsla (Icelandic Review of Politics and Administration, IRPA), sem gefið er út af Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála, hefur á árinu 2013 verið unnið að ýmsum breytingum á útgáfunni og ber þar einna hæst upptöku nýs ritstjórnar- og dreifingarkerfis. Kerfið verður formlega tekið í notkun með útgáfu haustheftis tímaritsins 2013, sem er 2. hefti 9. árgangs. … Höfundur þessarar greinar er vefstjóri tímaritsins og hefur verið það frá upphafi. Hér verður reynt að miðla þeirri reynslu og sýn sem aðstandendur tímaritsins hafa öðlast á árinu í þessu verkefni.“

Tengill í greinina.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *